Hafró gefst upp við stjórn humarveiða. Brúka það eina sem þeir kunna. Setja veiðibann

Nú er Hafró búin að gefast upp á humrinum. Nýjasta ráðgjöfin er að veiða ekkert í 2 ár, hvað tekur svo við? Líklega áframhaldandi friðun eins og með lúðuna.

Ég hef bent á að stór þorskur éti mikið af humri, að humarinn éti undan sér, hann helgar sér jú holur og vill ekki keppinauta. Þekkt er frá Bretlandseyjum mikil sókn er nauðsynleg, annars minnkar stofninn og aflinn, eftir verða aðeins stórir og fáir humrar eins og hér.

Til að komast nær svarinu hef ég stungið upp á því að beita mjög mismunandi sókn á aðskildar humarbleyður og sjá hvað gerist. En æ nei, í staðinn fara þeir í rándýrar hljóðmerkjarannsóknir til að kortleggja hegðun humars á botninum.

Miklar rannsóknir hafa verið gerðar á hinum náskylda vatnahumri (Astakus). Ég veit ekki hvort þeir hafi sótt þekkingu þangað eða til írskra og skoskra sjómanna, nokkuð sem ég hef gert. Varla, þeir vilja gera allt sjálfir og alls ekki hlusta á aðra.

Ég skrifaði nýlega nokkuð ítarlega grein í Bændablaðið þar sem ég velti upp nokkrum tillögum að skýringum á ástandi stofnsins. Ég hef ekki fengið nein viðbrögð frá Hafró, ekki einu sinni skammir, og átti heldur ekki von á því að fenginni reynslu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Athyglisvert, að ég reyndi að haka við líkar þetta, en það gekk ekki. Ekki veit ég hversvegna. En athyglisvert sem þú bendir á kæri nafni og ég er sannfærður um að þú hafir rétt fyrir þér. 

Jón Magnússon, 19.12.2021 kl. 08:03

2 Smámynd: Jón Kristjánsson

Svo er hér eldri grein á sömu nótum:

https://fiski.blog.is/blog/fiski/entry/2197968/

Jón Kristjánsson, 19.12.2021 kl. 12:58

3 Smámynd: Atli Hermannsson.

Fréttirnar af stöðvun humarveiða hélt ég að myndu e.t.v. ýta við einhverjum, þá einna helst fína fólkinu sem frekast hefur efni á því að borða humar. En svo fattaði ég að það er hægt að flytja humar inn erlendis frá. Svo það er sennilega borin von að einhver muni hafa fyrir því að líta upp frá hvítvínsglainu og gera athugasemd.   

Atli Hermannsson., 20.12.2021 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband