Færsluflokkur: Vísindi og fræði
Ekki virðast þeir Hafrómenn og ráðherrann hafa áhyggjur á því að þorskurinn sé að éta undan sér, aðallega séu það þeir yngstu, sem tortíma bræðrum sínum.
Þeir hafa minni áhyggjur af þeim stærri, en altalað er nú meðal sjómanna að stórþorskur sé horaður og lifrarlítill og éti mikið af eigin bræðrum.
Hvað um það, myndbandið sem var tekið um borð í íslenskum togara fyrir 3 árum talar sínu máli.
Sjálfsafrán mest hjá þeim yngstu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt 2.5.2019 kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.4.2019 | 20:47
Umsögn um strandveiðifrumvarpið
Við Sigurjón Þórðarson vorum kallaðir fyrir atvinnumálanefnd í tilefni breytinga á lögum um strandveiðar. Í framhaldinu sendum við inn eftirfarandi umsögn til nefndarinnar. Í henni var ekki verið að tala um smáatriði eins og fjölda daga, aflahámark, svæðaskiptingu eða hvort einhver fengi meira en annar. Í stað þess voru færð rök fyrir því að gefa ætti veiðar smábáta frjálsar, það væri ekki hættulegt heldur beinlínis nauðsynlegt:
Það okkar skoðun að það þurfi að auka verulega bolfiskveiðar á grunnslóð og sérstaklega innfjarða, til þess að auka framleiðslugetu nytjastofna landsins. Auk þess myndi aukinn afli vænka hag sjávarbyggðanna.
Nýlega birtist skýrsla frá Hafró um að rækjustofnar innfjarða hefðu gefið eftir samfara fjölgun þorsks og ýsu, en mjög hefur dregið úr sókn á grunnslóð, m.a.vegna þeirra takmarkana sem kvótakerfið setur á veiðar smábáta. Segir þar að áberandi breytingar hafi orðið í lífríkinu í sex fjörðum og flóum á Vestfjörðum og Norðurlandi á tveimur áratugum frá 1995. Rækja hafi átt í vök að verjast vegna vaxandi afráns þorsks og ýsu sem hafi endað með því að rækjustofnarnir inni á þessum fjörðum hafi hrunið. Í Ísafjarðardjúpi gat rækjuafli verið milli tvö og þrjú þúsund tonnum á vertíð fram að aldamótum, en í vetur er heimilt að veiða þar 456 tonn. Þar sem ástandið er verst hafa engar veiðar verið leyfðar frá aldamótum. Sjá má nánari umfjöllun um þessa skýrslu í Morgunblaðinu 21. febrúar 2019 undir titlinum:
Afránið fór illa með rækjuna - Með fjölgun þorsks og ýsu í fjörðum og flóum fyrir vestan og norðan gáfu rækjustofnar eftir.
Forsaga málins er sú að með tilkomu kvótakerfis og mikils niðurskurðar þorskafla til þess að reyna að "byggja upp" stofninn hefur stórlega dregið úr sókn í innfjarðaþorsk með þeim afleiðingum að rækjan er upp étin og reyndar humarinn fyrir Suðurlandinu einnig. Þá er hann líka búinn að grisja vel seiði flatfiska og fleiri tegunda. Rækjudeildin er búin að benda á þetta í áratugi en má sín lítils gegn þorskadeild Hafró. Til að bregðast við þessu ætti að gefa fiskveiðar innfjarða frjálsar, það myndi gefa meiri fisk og meiri rækju. Þorskurinn er langt kominn með að éta upp loðnuna, búinn með rækjuna, humarinn, lúðuna og flatfiska á grunnsævi og ungviði sjálfs síns.
Spurt hefur verið hvort frjálsar veiðar smábáta muni ekki leiða til ofveiði er til að svara að fyrir nokkrum árum var ákveðið að minnka nýtingarhlutfall þorsks frá því að vera 35-40% af stofnstærð áratugum saman niður í 20% til þess að byggja upp stofninn. Þessi 35% nýting gaf 4-500 þús tonna árlegan afla langtímum saman sem sýndi að stofninn þoldi álagið vel. Eftir að nýtingarhlutfallið var lækkað féll aflinn og jafnframt minnkaði nýliðun. Þetta stafar af því að fæðuframboð hafsins leyfði ekki svo stóran stofn og hann fór að éta undan sér. Stofnstærð þorsks hefur náð mögulegu hámarki sínu og stofninn getur ekki stækkað meir. Meðan nýtingarhlutfallið er ekki hækkað fer þorskaflinn ekki mikið yfir 250 þús tonn, helming af því sem hann var í "ofveiðinni" áður fyrr. Að auka afraksturinn með frjálsri veiði smábáta gerið því ekkert nema gagn og veldur fráleitt ofveiði. Bónusinn er auknar tekjur af fiskimiðunum, þeim til gagns.
Tillögur að breytingum á frumvarpinu
Í ljósi framangreinds er lagt til að veiðar smábáta á handfæri verði gefnar frjálsar. Það eru engin fiskifræðileg rök fyrir því að veiðar smábáta hafi einhver áhrif á stærð þorskstofnsins til hins verra.
3. apríl 2019
Jón Kristjánsson fiskifræðingur og Sigurjón Þórðarson líffræðingur
27.2.2019 | 20:05
Á að banna álaveiðar á Íslandi?
Verið er að undurbúa reglugerð um bann við álaveiðum. Ég sendi eftirfarandi umsögn um reglugerðina í dag:
Ég undirritaður legg til að þessi reglugerð verði dregin til baka.
Órökstutt er að áll sé í hættu vegna ofveiði almennt og alls ekki hér á landi. Tilgátan um að minnkandi hrygningarstofn sé orsök minnkandi reks álalirfa til Evuópu er hrein ágiskun. Það þarf ekki miklar breytingar á hafstraumum eða almennu náttúrufari til að það komi fram í minnkuðu reki álalirfa.
Ég vann á Veiðimálastofnun í 17 ár og kom m.a. að álaveiðum og verkefnum þar tengdum, dreifði álagildrum til bænda og hvatti þá til að nýta auðlindana, yfirleitt við litlar undirtektir viðkomandi. Ég álít að álaveiði á Íslandi sé afar lítil og efast um að aflinn nái 10 tonnum. Bann við álaveiðum gerir þeim örfáu sem nýta hann til matar erfitt fyrir og býr til lögbrjóta.
Á Íslandi er miklu meira um ál en menn halda, hann gerir lítið vart við sig. Hann er í öllum vötnum og síkjum sem hafa samband við sjó frá Hornafirði til Vestfjarða. Hann festist ekki í netum en oft má sjá merki um hann því hann skilur eftir sig slímhringi í möskvunum þegar hann treður sér í gegn. Bann við álaveiðum er hreinlega hlægilegt.
Þessi beiðni um álaveiðbann er sett fram að kröfu ICES enda veit Hafró lítið um ál og álaveiðar á Íslandi að eigin sögn:
"Eins og áður sagði eru ekki fyrirliggjandi tölur um álaveiði hér á landi. Ekki eru neinar rannsóknir á nýliðun eða vöktun í gangi hér á landi og því ekki til sértækt mat á veiðiþoli."
Samt segja þeir: "Álastofninn er í hættu og þolir illa veiðar. Meðan svo er er það ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar að bann verði sett á allar álaveiðar hér á landi. Jafnframt að ef áll veiðist í silungs eða laxveiði verði skylt að sleppa honum."
Ekki er samt meiri alvara í þessu en að lagt er til að heimilt verði að sækja um undanþágu til veiða ál til eigin neyslu, m.a. til að afla uppplýsinga um afla og sókn, gögn sem má afla með smávegis símavinnu og vettvangsferðum.
Þrátt fyrir að ICES hafi lagt til bann við öllum álaveiðum frá árinu 2000 er uppgefinn ársafli 2-3 þús. tonn frá árinu 2009. Það eru því ekki allir sem hlusta á ráðgjöfina.
Væntanleg reglugerð er algerlega óþörf og bakar meiri vandræði en gagn. Hana ber að draga til baka.
Jón Kristjánsson
-----------
Hér er athyglisverð grein um álarannsóknir og vísað er til merkinga á ál til þess að kortleggja ferðir hans á leiðinni til hrygningarstöðvanna í Saragassohafi. Athygli vekur að mikið af ál er bráð hvala á leiðinni þar sem þeir finna álinn með asdikkinu á miklu dýpi.
Kortið sýnir hvar merktir álar endurheimtast og hver örlög þeirra urðu. Merkin eru fyrirfram forrituð um hvenær þau eiga að losna úr fiskinum og senda gögnin í gervihnött. Hitastig er skráð og ef í ljós kemur að það hafi snarlega hækkað í 37 gráður er dregin sú ályktun að þau hafi verið étin af hval. (Smellið á mynd til að stækka)
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 20:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.1.2019 | 18:43
Hið jákvæða við úteikninga á áti hvala
Nýlega, í grein í Fréttablaðinu 22. janúar, gerði stjórn Vistfræðifélags Íslands alvarlegar athugasemdir við meðferð upplýsinga um áhrif hvala á lífríki sjávar í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða. Þar kom m.a. fram að hvalir væru miklir áburðardreifarar og veiðar á þeim myndu fjarlægja orku og næringarefni úr vistkerfinu, eins og stjórnarmenn segja í greininni:
"Rannsóknir hafa meðal annars sýnt að endurkoma hvala inn á ákveðin svæði getur haft jákvæð áhrif á frumframleiðni sem eykur frekari framleiðslugetu og fjölbreytileika innan vistkerfa. Þannig er úrgangur frá hvölum, sem er ríkur af snefilefnum, svo sem köfnunarefni, fosfór og járni, mikilvægur plöntusvifi, sem er undirstaða vistkerfa sjávar. Einnig eru hvalhræ sem falla til botns mikilvægur hluti botnvistkerfa, sérstaklega í djúpsjó...."
"Hvalir eru hluti af flæði orku um fæðuvef sjávar og gegna afar mikilvægu hlutverki í hringrás næringarefna. Það sem þeir éta skilar sér að mestu aftur út í náttúruna t.d. í úrgangi og hræjum af dauðum dýrum. Fiskveiðar mannsins fjarlægja hins vegar orku og næringarefni út úr vistkerfinu sem skilar sér ekki til baka. Því er ekki hægt að bera saman afrán hvala og manna út frá orkuþörf líkt og var gert í skýrslunni."
Þetta eru nokkuð djarfar ályktanir því ætla má að það sem fjarlægt er úr hafinu skili sér aftur í sjóinn í gegn um skolpræsin. - Í tilefni þessara skrifa birtum við félagarnir grein í Mogga í dag:
Umræðan um gríðarlega mikið át hvala á fiski á hafsvæðinu í kringum Ísland hefur fyrst og fremst snúist um hvort að fækkun hvala leiddi sjálfkrafa til þess að fiskistofnar stækkuðu og þar með afli nytjastofna. Hagfræðingar Háskóla Íslands virðast líta á vöxt og viðgang fiskistofna, rétt eins og um væri að ræða einhverja summu inn á bankabók Landsbankans. Þeir virðast horfa á lífríkið með þeim augum að ef selur étur 10 þorska þá sé hægt að draga þá frá þeim höfuðstólnum í hafinu og þar með þurfi að skera niður leyfilegan heildarafla í þorski um þessa 10 þorska. Staðreyndin er sú að vistkerfi hafsins lýtur ekki sömu lögmálum og bankabókin, þar sem að fækkun í fiskistofni leiðir sjálfkrafa til aukins fæðuframboðs og vaxtar þeirra fiska sem eftir verða.
Þeir sem hafa mótmælt kjánalegri ofureinföldun Hagfræðistofnunar hafa hingað til ekki beint sjónum sínum að því að afrán hvala á fiski dregur úr öðrum þéttleikaháðum afföllum. Þeir fiskar sem ekki eru étnir losna við samkeppni þeirra sem voru étnir um fæðu og ættu því að vaxa hraðar en ella.
Þá er beinlínis fráleitt að ætla að næringarefni í úrgangi hvala hafi einhver teljandi áhrif á frumframleiðslu í hafinu í kringum Ísland eins og einhverjir hafa bent á. Í fyrsta lagi fer frumframleiðslan aðeins fram í allra efsta lagi sjávar þar sem áhrif sólarljóss gætir mest. Á sumrin þegar framleiðslan er hve mest er hafið lagskipt þar sem heitur sjór er eðlisléttari en kaldur og flýtur ofan á kalda sjónum. Þau næringarefni sem hvalurinn og lætur frá sér þyrfti hann því að losa í yfirborðinu, annað færi einfaldlega til spillis. Öll dýr skilja út næringararefni með úrgangsefnum og það á einnig við um þau 7,6 milljónir tonna af lifverum sem hvalirnir innbyrða og því barnalegt að horfa á úrgang hvala sem einhverja viðbót við ólífræn næringarefni sem plöntusvsifið getur nýtt sér.
Það að Hafró áætli að hvalurinn éti um Þrefalt meira magn af fiski úr hafinu í kringum Ísland en íslensk fiskiskip veiða, gefur augljóslega til kynna að reiknilíkanið sem Hafró notast við í sinni veiðiráðgjöf sé kolrangt. vöxt og viðgang fiskistofna.
Góðu fréttirnar
Hið afar jákvæða við útreikninga á áti hvala sýnir svart á hvítu að veiðiráðgjöf Hafró á umliðnum áratugum er allt of íhaldssöm og útreikningarnir benda eindregið til þess að hægt sé að veiða mun meira úr helstu nytjastofnum þjóðarinnar en nú er gert .
Reiknilíkanið sem Hafró notast við gerir ráð fyrir að að náttúrleg afföll, þ.e. það sem drepst vegna hvala, sela, sjúkdóma og áti annarra fiska sé svipað og fiskiskip veiða árlega. Með upplýsingum um hið mikla fiskát hvala staðfestir Hafró að náttúrulegur dauði er talsvert meiri en forsendur þeirra gera ráð fyrir, sem ætti að segja öllum vísindamönnunum á Hafró að fiskistofnarnir sem um ræðir eru miklu mun stærri en stofnunin gerir ráð fyrir í sínum útreikningum og að áhrif veiða á fiskistofnana séu stórlega ofmetin.
Þorskurinn lendir ekki bara í hvalsmögum heldur rennur hann út af bankabókinni í fæðuleit, því skv. nýjum rannsóknum Norðmanna var um þriðjungur þorsks sem nýlega veiddist við Jan Mayen af íslenskum uppruna.
17.9.2018 | 20:13
Sjávarútvegsráðstefnan 2018 fjallar ekki um stjórn fiskveiða
Af einhverjum ástæðum er ég á póstlista hjá apparati sem heitir "Sjávarútvegsráðstefnan".
Þar segir: "Á Sjávarútvegsráðstefnunni 2018 verða 17 málstofur og er nú búið að skipuleggja 15 málstofur og í þeim verða flutt 75 erindi. Í tveimur málstofum eru keypt erindi og verða þær kynntar seinna. Það sem tekið verður fyrir á Sjávarútvegsráðstefnunni 2018 er m.a.: Markaðsmál, vottanir, umhverfismál, hönnun, starfsumhverfi, greiningar, framtíðartækni, uppruni, vörumerki og margt fleira."
Ég skoðaði dagskrána og sá að ekki verður einu orði fjallað um stjórn fiskveiða, fiskifræðina að baki hennar og félagsleg áhrif svo sem brottkast afla og þeirra áhrifa sem kvótakerfið hefur haft á sjávarþorp landsins."
Nokkuð merkilegt, þar sem Hafró á áttunda áratugnum lofaði 500 þúsund tonna jafnstöðuafla í þorski, yrði þeirra ráðum fylgt. Þeirra ráð voru að vernda smáfisk og veiða minna, nokkuð sem hefur valdið því að aflinn hefur verið minna en helmingur loforðsins og byggðir landsins, sem áður blómstruðu þegar fiskveiðar voru óheftar og meint ofveiði geisaði.
Ljóst er að loforðið brást en ekki virðist leyfilegt að ræða hvers vegna svo fór. Ég og fleiri höfum bent á að að það sé vegna óeðlilegs samdráttar í sókn og þeirrar trúar að veiðar séu afgerandi þáttur í afföllum fisks og að viturlegt sé að friða smáfisk í von um að hann veiðist í meira mæli stærri síðar. Það hefur ekki gengið eftir og svo virðist sem smáfiskurinn, sem er fullgóð vinnsluvara, þjóni þeim tilgangi að vera fóður fyrir stærri þorsk þegar síld og makríll hverfa af miðunum á haustin.
Nei þetta verður ekki rætt því búið er að slá hulíðshjálmi á kvótakerfið, sem stuðlar að brottkasti og er búið að helminga þorskaflann og leggja byggðir landsins í rúst.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.9.2018 | 17:57
Ráðherra framselur vald sitt til sértrúarsöfnuðar
Hér er ráðherra býsna ánægður með ástand mála og hælir Hafró á hvert reipi, stofnun sem margir líkja við sértrúarsöfnuð sem engin rökstudd gagnrýni virðist bíta á en hefur tekist að halda þorskaflanum í minna en helmingi þess sem hann var áður en þeir fengu fullt vald til þess að stjórna, nú á síðustu árum með því að halda sóknarþunganum í 20% (aflaregla) miðað við 40% á velgengnisáratugunum. Hér er glefsa úr viðtalinu:
Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um aflaheimildir nýhafins fiskveiðiárs var ekki langan tíma á borði ráðherrans áður en hann afgreiddi hana án breytinga. Spurður hvort til greina hafi komið að víkja frá ráðgjöfinni segir hann að það komi alltaf til greina hverju sinni. En þessi ráðgjöf er mjög vel rökstudd og við höfum fylgt ráðum okkar færasta fólks á þessu sviði í nokkuð langan tíma. Við gefum okkur út fyrir það að nýta með sjálfbærum hætti fiskistofnana í hafinu í kringum landið og sú stefna sem við höfum haft hefur skilað okkur á þann stað sem við erum á í dag. Ég sé því enga ástæðu til að hvika nokkuð frá henni.
Það setur að manni ónot við svona yfirlýsingu. Ráðherrann, sem á að stjórna fiskveiðum framselur öll völd í hendur Hafró. Það er ekki að sjá að hann hafi spurt spurninga eða leitað umsagnar eða ráðgjafar frá sjómönnum eða óháðum sérfræðingum, hann bara rennir blint í sjóinn. Og ekki gerir hann sér grein fyrir því að fiskveiðistjórn snýst ekki bara um fiskifræði, hún snýst einnig um tekjur fólks og þjóðarinnar af sjávarauðlindinni svo og búsetu og byggðamál.
Þekkir ráðherra ekkert til aflabragða fyrri ára? Veit hann ekki að Hafró hefur sætt mikilli gagnrýni í áratugi? Veit hann ekki að Hafró hefur haft alla gagnrýni að engu? Veit hann ekki að fiskifræði Hafró má flokka undir trúarbrögð? Hefur hann ekki lesið skýrslu Tuma Tómassonar um ytri og innri gagnrýni á vinnubrögð og hugmyndafræði Hafró? Er honum ekki kunnugt um að HANN á að stjórna fiskveiðunum og að það er ráðherra óheimilt að framselja stjórnvald til annarra? Sennilega er honum ekki kunnugt um neitt af þessu svo ég taki nú ekki dýpra í árinni.
Ég bendi honum á að lesa "Fiskleysisguðinn" eftir Ásgeir heitinn Jakobsson, hann finnst í bókasafninu neðar í húsinu.
Þessu til skýringar er rétt að benda á að hér við land voru í áratugi veidd 4-500 þús tonn af þorski, í nær óheftri veiði með hjálp útlendinga, aðallega Breta.
Þegar við höfðum fengið full yfirráð yfir landhelginni 1976 lofaði Hafró að árlegur afli á Íslandsmiðum yrði að jafnaði um 500 þús. tonn, - væri farið að þeirra ráðum. Það var gert og árangurinn er sá að við erum að skríða í 260 þús tonn.
Sem sagt: Svikin loforð. Fákunnáttumennirnir skulu svo verðlaunaðir með því að láta þá taka alveg við stjórninni.
Hér má sjá línurit yfir þorskveiði á Íslandsmiðum 1945-2015. Það skýrir sig sjálft.
Hyggur á nýtt frumvarp um veiðigjöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég var búinn að spá samdrætti í þorskafla vegna þess að vísitalan úr vorrallinu lækkaði milli ára (sjá síðustu færslu). En nú bætir Hafró 3% við þorskkvótann. Hvað lá þar til grundvallar? Skýringin fannst í vinnuskýrslu Norð- vestur vinnuhópsins.
Þar segir að tölfræði úr vorralli gefi til kynna breytingar í veiðanleika (hm!). Því er farið í að nota niðurstöður úr haustralli ásamt VP greiningu á afla ársins 2017 til að reikna út stofnstærðina. Sem sagt, nota ársgömul gögn til að "leiðrétta" nýjasta vorrall. Ef vorrallið hefði verið notað eingöngu hefði það gefið 1162 þús. tonna stofn, haustrallli í fyrra eitt sér mat stofninn 1428 þús. tonn, sameinuð niðurstaða varð svo 1356.509 tonn.
Það vantar nú ekki upp á nákvæmnina.
Hér er klipp úr skýrslunni:
Diagnostics: The tuning with both the spring and the fall survey show similar diagnostics as that observed in previous years (see Tables 9.8, 9.9 and 9.10 and Figure 9.6 for the residuals). A negative residual block for spring survey indices age groups 2 to 5 in recent years may indicate that there may have been some change in catchability.
Results: The detailed result from the assessment are provided in Tables 9.11, 9.12 and the stock summary in Table 9.13} and Figure 9.7. The reference biomass is estimated to be 1356.509 kt in 2018 and the fishing mortality 0.26 in 2017.
Alternatives: Assessment based on tuning with the spring and the fall survey separately have in recent years shown that the fall survey gives a higher estimate than the spring survey (Figure 9.8). Tuning with spring survey only this year resulted in a reference biomass of 1162 kt in 2018 and a fishing mortality of 0.3 in 2017. An assessment based on the fall survey only gave reference biomass of 1428 kt in 2018 and fishing mortality of 0.25 in 2017. Mohns rho: One of the ToR for this year was to evaluate the retrospective pattern of the assessment (Figure 9.9) by calculating the Mohns rho values.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.6.2018 | 12:05
Er ekki komið nóg af mistökum við stjórn fiskveiða?
Birt í Morgunblaðinu 9. júní 2018
Hafró kom nýlega úr ralli, en rallið þeirra aðferð við að mæla stærð fiskstofna, svo gefa megi út veiðiráðgjöf, sem byggist nú á aflareglu, þar sem fyrirfram ákveðið hlutfall skal veitt úr hverjum stofni. Veiða skal 20% af áætluðum veiðistofni þorsks.
Hafró tilkynnti að stofnvísitala þorsks "væri 5% lægri en meðaltal áranna 2012-2017, þegar vísitölur voru háar." En þegar skoðað er nánar má sjá að vísitalan hefur lækkað um 21% frá í fyrra, svo einkennilegt er að miða hana við meðaltal fyrri ára. Niðurstaða rallsins varðandi þorsk er þvert á það sem Hafrómenn héldu í fyrra, en þá bjuggust þeir við að veiðistofninn myndi stækka nokkuð milli 2017-18.
Aflaráðgjöfin er nokkuð beintengd vísitölunni svo vænta má tilsvarandi lækkunar á aflamarki eða um 50 þús. tonn en líklega gildir enn sú regla að kvóti megi ekki breytast meira en 30 þús. tonn milli ára.
Ráðamenn hafa keppst um að mæra okkar fiskveiðistjórnarkerfi, segja það besta kerfi sem völ er á, það tryggi stöðugleika og að deilur um það séu mjög á undanhaldi. Svo virðist sem markmið laganna hafi gleymst en þar segir: "Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra (nytjastofnanna) og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu".
Segja má að tekist hafi að vernda stofnana því þorskaflinn nú er ekki nema helmingur þess sem hann var áður en farið var að stjórna með kvótakerfinu. En markmiðið um hagkvæma nýtingu til að treysta byggð og atvinnu í landinu hefur brugðist og flest sjávarþorp flokkast nú undir brothættar byggðir.
Undirstaðan kvótakerfisins er fiskveiðiráðgjöf Hafró. Stofnunin ákveður aflamark og mótar þær reglur um hámarksafla sem hún telur að gefi mesta nýtingu. Á áttunda áratugnum trúði Hafró því að þorskstofninn væri ofveiddur og draga yrði úr veiðum. Stofnunin fullyrti þá að ef farið yrði að þeirra ráðum væri hægt að veiða 500 þús. tonn af þorski árlega. Ráð þeirra var í megin atriðum að draga úr veiði, sérstaklega á smáfiski svo hann fengi að vaxa, stofninn að stækka og þá fengist meiri afli seinna.
Þegar við höfðum fengið full yfirráð yfir landhelginni var hægt að hefjast handa. Möskvi var stækkaður í trolli og farið var að loka svæðum þar sem mikið veiddist af smáþorski. Þetta bar þann árangur að verulega dró úr afla á smáfiski. Þegar hann svo fór að stækka og banka á dyrnar var sett á skrapdagakerfi til að takmarka þorskaflann. Það dugði skammt og 1981 veiddust 470 þús. tonn af þorski. Aflinn féll svo í 300 þús. tonn árið 1983, sem þótti skelfilegt og þurfti að leita aftur til stríðsáranna til að finna svo lítinn afla. Fiskur var orðinn léttari eftir aldri vegna ónógrar fæðu og stofninn féll.
Í stað þess að endurskoða stefnuna í ljósi þeirrar niðurstöðu að fæðuframboðið stóð ekki undir stækkun stofnsins héldu menn áfram að friða. Árið 1994 varð nýr skellur og gripið var til enn frekari friðunaraðgerða. Sett var á 25% aflaregla. Annar skellur varð 2001 og þá var haldið tveggja daga fyrirspurnaþing, þar sem stefna Hafró var krufin til mergjar, en stefnunni í engu breytt.
Enn kom skellur 2007 og þá kom aflareglunefnd saman og lét tölvuna reikna út að það ætti að taka 20% úr stofninum. Til samanburðar má geta þess að áður fyrr þegar aflinn var 4-500 þús. tonn árum saman voru 35-40% tekin úr stofninum án þess að valda nokkrum skaða. Í öll þau skipti sem aflinn féll var undanfari þess horaður fiskur og sjálfát. Fæðubúrið þoldi ekki friðun og tilraunirnar til stækkunar stofnsins.
En eftir að 20% aflareglan var sett fór friðunin að bera þann árangur meira varð af stórum fiski. Ástæðan er líklega sú að skyndilega varð til fæða fyrir stóran fisk en árið 2006 fór makríll, og síðar síld að ganga á Íslandsmið á sumrin. Stór fiskur fór skyndilega að veiðast fyrir Norðurlandi og var hann fullur af makríl og síld. En þegar makríllinn fer héðan á haustin er stórþorskurinn enn svangur og leggst í sjálfát og ræðst einnig á aðra nytjafiska. Nýliðun þorsks hefur verið léleg frá 1986 vegna þessara þátta, fæðuskorts og sjálfáts, en hrygningarstofninn hefur verið óvenju stór undanfarin ár, það þarf að leita aftur til 1964 til að finna eitthvað svipað.
Það er ekki bjart framundan í þorskveiðum og fyrirsjáanlegt að afli mun ekki aukast frá því sem nú er nema aflareglu og sóknarmynstri verði breytt þannig að veitt verði meira úr stofninum og hætt að friða smáfisk. Þorskstofninn er að mínu mati kominn í hámark og mun því aðeins geta minnkað. Þá bendi ég á að með óbreyttri aflareglu yrði stofninn að tvöfaldast til að gefa 500 þús. tonn. Það er ómöguleiki.
Myndin sýnir þróun þorskaflans frá stríðslokum, tímasetningar á útfærslu landhelginnar og hvernig aflatakmörkunum hefur verið háttað. Miðað við loforð Hafró um 500 þús. tonna jafnstöðuafla hafa tapast árlega um 200 þús. þorsktonn í 20 ár eða 4 milljónir tonna. Það hefði mátt gera mikið fyrir þá peninga. (Moggi sleppti að birta þessa mynd með greininni)
Svo er hér smá viðbót, mynd tekin um borð í togara:
Þorskurinn er gráðugur og hikar ekki við að éta undan sér.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 12:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.3.2018 | 18:30
Til Hamingju Hafró! - Grein eftir Sveinbjörn Jónsson
Ég tel ástæðu til að endurbirta hér grein eftir Sveinbjörn Jónsson trillukarl en hún birtist í síðasta tbl. Brimfaxa, málgagni smábátaeigenda. Alvöru greinar um mistökin í stjórnun fiskveiða eru orðnar sjaldgæfar og ég þakka Sveinbirni fyrir þessa grein. Hann mætti gjarnan skrifa fleiri, ekki veitir af.
Til Hamingju Hafró!
Er ekki dásamlegt að eiga svona stóran þorskstofn í hafinu. Tilfinningin hlýtur að vera stórkostleg að hafa fengið að ala upp miklu stærri þorskstofn en við áttum, til að geta veitt miklu stærri þorska með miklu minni fyrirhöfn.
Að vísu vex aflinn lítið í samanburði við stofninn en eru það ekki bara góð búhyggindi að eiga nóg af fiski í hafinu? Hvernig lítur annars fóðurhliðin á dæminu út? Hve mikið fóður skyldi liggja að baki hverju tonni af afla af 7-10 ára fiski samanborið við 4-7 ára fisk? Dæmið er að vísu svolítið loðið vegna margbreytilegrar aldurs/afla dreyfingar en það ætti ekki að standa í sérfræðingum Hafrannsóknarstofnunar að velja sér tvö ár til samanburðar.
Mín skoðun er sú að flutningur sóknar upp eftir stofni hafi kostað lífríkið að minnsta kosti þreföldun af fóðri vegna þeirra einstaklinga sem eru í samanburðinum.
En það þarf líka að fóðra stofninn allan og til þess að geta framkvæmt breytinguna þurfti að lágmarki að tvöfalda stofnstærðina. Þetta þýðir að fóðurdæmi aflans er þegar orðið sexföldun. Og auðvitað vex samkeppnin við stærri stofn og stöðugt meiri orka fer í lífsbaráttu í stað vaxtar. Ég vil því álykta að Hafrannsóknarstofnun hafi tekist að tífalda fóðurþörf afla íslenska þorskstofnsins og tel því við hæfi að óska þeim til hamingju með árangurinn.
Þar sem margir íslendingar hafa betri innsýn í búskap en lífríki hafsins vil ég leyfa mér að gera tilraun til að færa afrekið milli greina svo menn átti sig á stærð þess.
Segjum að Rannsóknarstofnun landbúnaðarins fengi Alþingi til að setja í lög að ekki mætti slátra sauðfé yngra en 5 ára og reynum svo að gera okkur grein fyrir hvað það mundi kosta af fóðri að viðhalda sömu kjötframleiðslu og núverandi sumarlambaslátrun leiðir af sér. Húsakostur og grasrækt þyrfti að margfaldast á nokkrum árum en það mundi ekki duga til þannig að Eimskip og Samskip þyrftu að fylla öll sín skip og skemmur af innfluttu heyi ef viðhalda ætti sömu kjötframleiðslunni. Það er ekki sérfræðingum landbúnaðarins að kenna að ég treysti mér ekki til að óska þeim til hamingju eins og Hafró. Þeir fá aldrei að gera slíka tilraun og jafnvel þó þeir reyndu er víst að hún mundi mistakast.
Afrek Hafrannsóknarstofnunar verður enn stórkostlegra þegar tekið er tillit til þeirra umhverfisaðstæðna sem það er unnið við. Fyrir tæpum áratug hrundi íslenska hagkerfið með skelfilegum afleiðingum fyrir suma. Um svipað leyti hafði Hafró tekist að þegja af sér alla gagnrýni og með stuðningi erlendra vísindamanna, sem líka eiga sama heiður skilinn, tekist að fá stjórnvöld til að samþykkja lækkun aflareglunnar í 20%.
Stjórnvöld sem fljótlega stóðu frammi fyrir uppsögnum starfsfólks í heilbrigðisþjónustu og niðurskurði flestra velferðarmála samþykktu að takmarka árlegan afla úr þorskstofni við 20% af stofnstærð til að þóknast snillingunum og hjálpa þeim að flytja sóknina ofar í þorskstofninn. Þeir sem þekkja veiðisögu íslenska þorskstofnsins vita að hann bar langtímum saman 30-40% sókn og svaraði henni oft með mjög hárri nýliðun.
Ég vil leyfa mér að álykta að 100 þúsund tonna árlegur viðbótarafli undanfarin 10 ár hefði eingöngu virkað sem heilbrigð grisjun og haft sáralítil áhrif á núverandi stofnstærð. Ljóst er að þau milljón tonn af þorski sem þannig hefði mátt bæta við aflann mun aldrei verða til vegna þess að þau voru ekki veidd. Veiðar búa til fisk á sama hátt og skógarhögg býr til timbur. Í tilfelli fiskanna getur bíómassi afla orðið margföld stofnstærð á nokkrum áratugum. Ég tel því enn ríkari ástæðu til að óska Hafrannsóknarstofnun til hamingju með árangurinn síðastliðna þrjá áratugina þar sem aflaskerðingar þeirra á tímabilinu eru líklega orðnar stærri en þorskstofninn getur nokkurn tíma orðið. TIL HAMINGJU HAFRÓ!
Sveinbjörn Jónsson
30.11.2017 | 11:27
Getur ekki besta fiskveiðistjórnarkerfið haldið fiskinum á miðunum?
Hún er athyglisverð þessi frétt: "Þorskveiði togara HB Granda hefur verið slök í haust og það sem af er vetri, eða fram að síðustu helgi þegar skipin fengu mjög góðan þorskafla. Fara þarf tíu ár aftur í tímann, eða aftur til þess tíma þegar þorskkvótinn var skertur verulega, til að finna dæmi um jafn slaka þorskveiði á þessum tíma árs".
Fram kemur að afli hafi verið mjög tregur í allt haust og upp á síðkastið hafi ekki fengist nema eitt tonn af þorski á togtíma á nóttunni er ekkert á daginn og að Halamiðin hefðu verið steindauð.
Um síðustu helgi breyttist þetta snögglega og varð mokafli hjá um 30 togurum á Vestfjarðamiðum. Ekkert er sagt hvernig sá fiskur leit út og ekki er spáð í hvaðan hann kom. Líklega er þetta ganga frá Grænlandi en hennar verður oft vart í desember þegar fiskur þaðan er að ganga til hrygningar við V og SV land. Auðvelt ætti að vera að greina hvort þetta sé Grænlendingur, ef einhver áhugi væri á því.
Miðin virðast eitthvað vera að þorna upp og nú gæti að vera að hefjast niðursveifla. Sé svo þá höfum við tapað óhemju afla. Fiskgengd hefur alltaf sveiflast upp og niður og því meira sem minna er veitt.
Og enn halda menn að hægt sé að geyma fiskinn í sjónum.
Þorskveiði ekki slakari í tíu ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |