Fréttablaðið: Þorskurinn í góðri uppsveiflu

Ummæli mín í Fréttablaðinu 11. september: 

Jón Kristjánsson fiskifræðingur furðar sig á málflutningi Hjalta í Jakobsstovu, forstjóra færeysku hafrannsóknastofnunarinnar, á ráðstefnu um fiskveiðistjórnun sem Hagfræðistofnun Háskóla Ísland gekkst fyrir í liðinni viku. Á ráðstefnunni, sem Jón kallar sjálfstyrkingarráðstefnu kvótasinna, hélt Hjalti því fram að sóknarmarkskerfi þeirra Færeyinga hafi reynst illa og sérstaklega sæist það á bágu ástandi mikilvægra nytjastofna, ekki síst þorsks.
Jón hefur aflað gagna úr togararalli þeirra Færeyinga þar sem skýrt kemur fram í bráðabirgðaskýrslu að þorskstofninn sé þvert á móti í uppsveiflu og ungfiskur sé að ryðjast inn í stofninn. Nýliðun sé því afar góð, þvert á það sem Hjalti heldur fram.
"Hjalti hefur verið í andstöðu við sóknarmarkskerfið og kannski vegna þess að ekki hefur verið farið að ráðgjöf hans um mikinn niðurskurð", segir Jón. "Hafró í Fæeyjum gefur alltaf ráðgjöf eins og þeir væru í kvótakerfi en ekki í blönduðum botnfiskveiðum, eða veiðiráðgjöf fyrir hverja tegund fyrir sig. Þeir eru pirraðir vegna þess að þeim hefur ekki verið hlýtt og hrakfallaspár þeirra þar með afsannaðar. Lægðin í þorskinum var fyrirséð 2003 og var vegna hungurs en ekki ofveiði því það getur ekki farið saman. Einungis var tímaspursmál hvenær þorskurinn braggaðist og nú er hann á uppleið úr litlum hrygningarstofni, eins og áratuga reynsla er fyrir."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

SÆll Jón, lýsi ánægju minni á því að Codsave skuli hafa ratað inní Mogga. En það les bara enginn Moggann lengur.

Af hverju skrifarðu ekki nýja grein uppúr þessu og setur í Baugstíðindi ? Það þarf að hamra á þessum helvítum !

Halldór Jónsson, 12.9.2009 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband