Bjartsýniskast?

pc100037_copy_747454.jpgÞetta er einkennileg frétt því Brussel var búin að boða. 25% niðurskurð , en það má lengi vera bjartsýnn. Vísindamenn þjóðanna ráða engu í Brussel og á hverju ári, vikuna fyrir jól, fara ráðherrar Bretlands og Írlands á hnjánum til Brussel til að reyna að hafa þar áhrif á úthlutunina en fá engu ráðið, koma alltaf eins og barðir hundar til baka með niðurskurð og niðurrif skipa í farteskinu. Um 70% breska flotans hefur horfið á sl.7 árum og Írar eru líka að rífa skip á fullu. Nánar um þetta hér að neðan: "Brussel vill fiskinn okkar." 

mbl.is Vænta aukins þorskkvóta í Norðursjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

"Vísindin efla alla dáð" sagði skáldið forðum. Ég er orðinn svo öfgafullur andófsmaður allra vísindakenninga að ég er farinn að hallast að því að Newton hafi verið helvítis prakkari og þyngdarlögmálið sé argasta blekking. Nú ætlar Hafró að tryggja að milljónir tonna af sýktri síld drepist í hafinu fremur en að bjarga sem mestu í land til að skapa verðmæti í mjölvinnslu með tilheyrandi atvinnusköpun.

Nú er svo komið að ekki verður lengur undan því vikist að setja ströng lög um ábyrgð stjórnsýslustofnana og stjórnsýsludómstól.

Árni Gunnarsson, 18.12.2008 kl. 18:55

2 Smámynd: Jón Kristjánsson

Svo virðist sem ástæða væntinga um aukningu þorskafla úr Norðursjó sé sú að Norðmenn píndu EB til að hækka kvótann frá í fyrra, en þeir deila veiðiréttinum í Norðursjó. Fyrri fréttir sögðu að EB vildi skera niður. Það virðist því vera kostur að vera utan EB og GETA samið.

Jón Kristjánsson, 18.12.2008 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband