13.12.2014 | 20:31
Enn láta menn plata sig: Samherji kaupir 22% í norsku sjávarútvegsfyrirtæki
Skv. "Fiskifréttum" kaupir Samherji 22% í norsku sjávarútvegsfyrirtæki, en dótturfyrirtæki Samherja, Cuxhavener Rederei og Icefresh, munu kaupa 22% hlut í norska sjávarútvegsfyrirtækinu Nergård. Ætlunin er að fyrirtækin vinni náið saman í framleiðslu og sölu á ferskum, frystum og þurrkuðum afurðum, að því fram kemur í fréttatilkynningu frá Nergård.
Kaupin eru hluti af viðleitni beggja fyrirtækjanna til þess að auka áherslu á ferskar afurðir, segir Tommy Torvanger forstjóri Nergård í samtali við sjávarútvegsvefinn Undercurrentnews.com, en hann vildi ekki upplýsa um kaupverðið.
Fyrirtækið, sem er með aðalskrifstofu í Tromsö í Norður-Noregi, gerir út fimm togara og starfrækir fiskvinnsluhús og sölufyrirtæki. Hjá því starfa 440 manns. Velta Nergaard hefur verið nálægt 35 milljörðum króna á ári og hafa vinnslur félagsins á undanförnum árum tekið á móti nálægt 50.000 tonnum af bolfiski og um 100.000 tonnum af uppsjávarfiski.
Vegna þessara kaupa er fróðlegt að rifja upp hvernig Samherji komst yfir allan úthafskvóta Breta.
"Guggan verður alltaf gul". Þetta sögðu Samherjamenn þegar þeir "keyptu" Gugguna frá Ísafirði þegar útgerðin var í fjárhagskröggum. Áður en hægt var að snýta sér var það brotið og Guggan hvarf til Þýskalands, DFFU hét fyrirtækið þar. En þeir hafa víðar leikið sama leikinn. Fróðlegt er að skoða hvernig þeir hafa náð öllum úthafsveiðikvóta Breta í Barentshafi með uppkaupum skipa hjá fyrirtækjum í kröggum. Lítum á þessa úttekt sem ég aflaði mér með viðtölum í Skotlandi og af heimasíðu Samherja:
Samherji í Evrópu
Samherji keypti Onward Fishing Co í Aberdeen. Því fyrirtæki gekk vel með sína togara, Dorothhy Gray, Glenrose I og Challanger. Eigandinn, Terry Taylor, var þá uþb. að panta 60 metra langan frystitogara og lagði til að keyptur yrði færeyski togarinn Artic Eagle. Þá hafði norska stjórnin stöðvað fyrirgreiðslu Statoil við Færeyinga og refsað þeim þannig fyrir veiðar þeirra í Smugunni. Togarinn, Artic Eagle, sem keyptur var fyrir lítið, þurfti endurnýjunar og breytinga við fyrir 2 milljónir punda. Hann var endurskírður Glen Eagle. Þetta olli fjárhagserfiðleikum hjá fyrirtækinu.
Páll Sveinsson hjá Icebrit í Grimsby frétti af vandræðum fyrirtækisins og lét Þorstein Má Baldvinsson vita. Samherji keypti fyrirtækið og breytti rekstri Onward Fishing. Togarinn Altjerin var tekinn inn í fyrirtækið og allur kvóti þess í Barentshafi fluttur yfir. Nafni fyrirtækisins var breytt í Artic Highlander. Önnur skip fyrirtækisins voru seld til Noregs til þjónustu við olíuborpalla. Íslenskur skipstjóri var fenginn á Highlander og áhöfnin, 25 manns, var til helminga skosk og íslensk.
Highlander landaði frystum flökum í Aberdeen í 2 ár en var skipt út fyrir Snæfugl sem leigður var frá öðru íslensku útgerðarfyrirtæki og skírður Norma Mary. Þetta var frystitogari, sem veiddi kvóta úr Barentshafi, en áhöfnin var nú að mestu íslensk.
Haraldur Grétarsson stjórnaði fyrirtækinu en fyrrverandi forstjóri gerði lítið annað en að fá bresk yfirvöld til að samþykkja íslensk skjöl og vottorð, og vera milligöngumaður Samherja og stjórnvalda. Hann sá einnig um þýska togara og vinnslustöðvar ásamt Finnboga Baldvinssyni.
ÚA hafði keypt "Boyd Line Management Services Ltd." í Hull haustið 2002. Boyd Line var gamalgróið fyrirtæki, stofnað árið 1936, og hjá því störfuðu 10 starfsmenn í landi og um 60 sjómenn. Velta félagsins var um 950 milljónir króna 2002. Félagið réð yfir um 40% af þorskkvóta Bretlands í Barentshafi, sem var úthlutað af Evrópusambandinu. Aflaheimildir Boyd Line voru við kaupin um 3.900 tonn af þorski, rösk 500 tonn af ýsu auk nokkurra tuga tonna í öðrum tegundum. Boyd Line gerði út tvö sjófrystiskip; Arctic Warrior, skráð í Bretlandi og nýtti kvóta félagsins í Barentshafi, og Arctic Corsair, skráð í Rússlandi og nýtti rússneskar veiðiheimildir. Fyrrnefnda skipið var mannað breskri áhöfn en á Arctic Corsair, sem var gert út í samvinnu við Rússa og undir rússnesku flaggi, voru flestir í áhöfn frá Rússlandi.
Samherji keypti árið 2004 Boyd Line og togara þeirra Arctic Warrior af Brimi, áður ÚA. Hollenska sjávarútvegsfyrirtækið Parlevliet Van der Plas B.V. tók þátt í þessum kaupum að hálfu. Félag þeirra fékk nafnið UK Fisheries Ltd.
Brim fékk rúm 13 milljónir punda fyrir Boyd Line, liðlega 2 milljarða á núvirði. Samherji greiddi með hlutabréfum í Íslandsbanka.
Árið 2006 keypti Samherji J. Marr og þeirra stóru togara, einn frystitogara með heimildir í Barentshafi og þrjá ísfisktogara með aflaheimildir í EU, á Grænlandi og við Ísland.
Þar með var Samherji kominn með allan kvóta Bretlands í Barentshafi í gegn um Onward, Boyd Line og J Marr. Þetta jafngildti um 80% af kvótanum við Ísland.
Samantekt á starfssemi Samherja 1994-2007
1994, keyptu frystitogarann Akrabergi í gegn um Framherja í Færeyjum sem var í þriðjungs eigu Samherja.
1995, keyptu 49.5% af Deutsche Fishfang Union (DFU).
1996, keyptu Onward Fishing með 4 togurum.
1996, stofnuðu Seagold í Hull til að selja eigin afurðir, frosinn fisk. Dótturfélag Seagold er Ice Fresh Seafood, Grimsby.
1997, Altherjerin endurskráður í Aberdeen til að veiða kvóta Onward. Endurskírður Onward Highlander
2000, Snæfugl endurskírður Normay Mary leigður til að koma í stað Altherjerin (Onward Highlander)
2001, keyptu fiskvinnslu Hussman and Manh GMBH í Þýskalandi, forstjóri Finnbogi Baldvinsson.
2001, Baldvin Þorsteinsson seldur til DFU.
2001 leigan á Snæfugli rann út og honum skilað til Íslands. Í stað hans kom Akureyrin, sem skírð var Norma Mary. Þegar skipið var búið að veiða kvóta Breta í Barentshafi var því flaggað til Íslands og sent á rækjuveiðar við Grænland. Skipinu var svo flaggað aftur til Bretlands til að veiða kvótann í Barentshafinu.
2003, keyptu hlut í norska laxeldisfyrirtækinu Fjord Seafood .
2003, keyptu hlut í Berg Frost, Færeyjum.
2004, keyptu Boyd Line með Arctic Warrior, íslenskir yfirmenn.
2006, keyptu J Marr í Hull.
2006, keyptu uppsjávartogarann Serene frá Shetlandseyjum.
2006, fóru inn í pólska útgerð, Atlaantex, með togarann Wiesbaden í gegn um DFFU, sem keypti 51% í félaginu, til að ná sér í ESB kvóta.
2007 keyptu erlenda starfssemi Sjólaskipa hf. og stofnuðu Katla Seafood, sem rekur sjö risatogara og tvö þjónustuskip við Máritaníu og Marokkó.
Samherji ræður nú yfir öllum úthafskvóta Breta, - í boði íslenskra banka.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 14.12.2014 kl. 20:09 | Facebook
Athugasemdir
Já, það hefur engin breyting orðið á því að aflaheimildir eru uppspretta auðs og hagsældar. Aflaheimildir voru óþekkt hugtak á meðan það taldist til mannréttinda að sækja sér og fjölskyldunni lífsbjörg á fiskislóð.
Nú hefur svo skipast um á heilahvelum íslenskra stórnmálamanna að í stað þess að skila fólki aftur þeim mannréttindum sem óvandaður lýður rændi handa sifjaliði og góðvinum er lagt til að flytja fólk og fyrirtæki milli landshluta að dæmi Austur-þýskrar og sovétskrar stjórnsýslu!
Og nú búa Skagfirðingar sig undir að þiggja gjafir Sigmundar Davíðs sem hann hyggst senda á skagfirska efnahagssvæðið í formi Landhelgisgæslu og Rarik. Þetta er þakklætisvottur handa Þórólfi Gíslasyni kaupfélagsstjóra fyrir dyggan vörð um fylgi FRamsóknarflokksins.
Þjóðin mun hinsvegar greiða nokkur hundruð milljónir fyrir vesenið.
Hversu litlu hefði hinsvegar þurft að auka við aflaheimildir og frelsi til handfæraveiða svo auðveldlega hefði náðst sá ábati sem þarna má vænta?
Árni Gunnarsson, 13.12.2014 kl. 22:30
Það er bara til eitt ráð við þessu
Níels A. Ársælsson., 14.12.2014 kl. 00:39
Ætli Samkeppnisstofnunin viti af þessu?
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 14.12.2014 kl. 01:19
Í textanum er meinleg prentvilla sem mætti laga:
Brim fékk rúm 13,000 fyrir Boyd Line, liðlega 2 milljarða á núvirði.
Erlingur Alfreð Jónsson, 14.12.2014 kl. 09:27
Ég ætla að taka mér bessaleyfi og dreyfa þessari grein.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.12.2014 kl. 15:39
Erlingur, ekki prentvilla, það vantaði þarna pundin, 13 þúsund sterlingspund.
Sjálfsagt að dreifa Ásthildur. Þá vil ég halda því til haga að heimildarmaður minn var John Noble, sem var framkvæmdastjóri eða eigandi Onward Fishing. Hann er nú látinn en hann bað mig að koma þessu á framfæri. Þessi samantekt okkar var fyrst birt 2009 hér á blogginu.
Jón Kristjánsson, 14.12.2014 kl. 17:11
Það hlýtur að vanta eitthvað meira, Jón. 13.000 sterlingspund eru ekki nema 2,5 milljón krónur á gengi dagsins í dag.
Erlingur Alfreð Jónsson, 14.12.2014 kl. 17:23
Set þetta með Jón.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.12.2014 kl. 18:47
Fyrirgefðu Erlingur, rétt hjá þér, Það vantar þarna þrjú núll. Á að vera 13 milljónir punda.Laga þetta.
Jón Kristjánsson, 14.12.2014 kl. 20:08
"Samherji keypti" - Hinn eini sanni Steini Spil, konsertmeistari kvótans ...
Ásgeir Överby (IP-tala skráð) 16.12.2014 kl. 10:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.