12.11.2009 | 14:35
Meira salt! - Enn hækkar í síldartunnunni
Í fyrra var um 1/3 síldarstofnsins sýktur og þó þurfti ráðherraleyfi til að hreinsa Vestmannaeyjarhöfn af deyjandi síld. Þá var síldin með dökka bletti í holdi svo það hefði þurft að handflokka flök í vinnslu. Ekki hefur ástandið lagast, þriðjungur er nú sagður sýktur.
En kýrhausinn er ekki tómur; nú er síldin öll sögð hæf til manneldis, sýkingin sé ekki komin í holdið, hún sé bara í hjartanu.
Bíðum nú við. Hvar er sýkta, blettóta, síldin frá í fyrra? Læknaðist hún eða er hún öll dauð? Þá ætti stofninn að hafa minnkað sem því svarar, mínus vöxt og nýliðun. En hvað kemur út úr kýrhausnum?
Stofninn var ekki neitt minni í júni s.l. en hann var í fyrra og nýjasta mæling þeirra í kýrhausnum segir að hann hafi stækkað frá þeim tíma og það megi því veiða 40 þús tonn.
Henni hefur þá snjóað, ég fann nokkrar í garðinum í morgun.
(Kýrhausinn er fenginn að láni frá Ásgeiri Jakobssyni heitnum)
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 14:36 | Facebook
Athugasemdir
Ha ha ha góður.
Já henni snjóar ábyggilega.
Níels A. Ársælsson., 12.11.2009 kl. 14:44
Helmingur lambanna á bænum reyndist sýktur af miltisbrandi. Yfirdýralæknir kvað upp þann úrskurð að engu lambi af bænum yrði slátrað fyrr en sjúkdómurinn væri genginn yfir. Þetta taldi hann eina úrræði bóndans til að viðhalda stofninum.
Árni Gunnarsson, 12.11.2009 kl. 21:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.