"Hlýnun sjávar" er afsökun fyrir öllu sem menn vita ekki.

Sérfræðingur Hafró í loðnumálum sagði nú í hádegisfréttum að loðnan hefði breytt göngumynstri og hrygningartíma vegna hækkandi sjávarhita. Hvar er sjávarhita að hækka og síðan hvenær? Allar mælingar sýna að hiti sjávar hefur farið lækkandi frá 2003. Hann bætti líka við að þeir hefðu trassað að rannsaska hrygningartíma, hrygningarstaði og afkomu seiða eftir hrygningu. Merkilegt, ég vissi ekki betur en að í öllum leiðöngrum eru tekin átusýni með reglulegu millibili og þegar ég var á sjó með rannsóknaskipum fyrir 50 árum voru fisklirfur veiddar í svokallaða doktora, átufangara sem dregnir voru á miklum hraða. Kannski eru menn á tölvuöld hættir að vinna úr líffræðigögnum?

Skoðum nokkur dæmi um sjávarhita, fengin úr gagnagrunni - Hafró.

Grímsey jan 2020

Hér er sjávarhiti við Grímsey 1987-2020.

Þar er áberandi samfelld kólnun frá 2003.

Vestmanna jan 2020

 

 

 

 

 

 

Siglufjarðarsnið 1952-15

Hér eru hitamælingar á bauju við Vestmannaeyjar.Þar hefur meðalhitinn verið að lækka sl. 10 ár. 

 

Svo er hér sá samanburður sem oftast er notaður en það er hitastig að vori á 50 m dýpi á Siglufjarðarsniði, rauða línan. Ekki er að sjá að hiti nú sé eitthvað meiri en hann var á góðu loðnuárunum 1980-90.

Ef menn ætla að skýra allar breytingar í sjónum út frá hækkandi hitastigi verða þeir að sýna gögn máli sínu til stuðnings eða þá hætta að nota þessi "rök".  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Þetta viðtal var dálítið merkilegt að því leyti að þarna er viðurkennt undanbragðalaust að Hafró sinnir ekki rannsóknarhlutverki sínu.  Og skýringin er einföld. Fjársvelti! Þar á bæ stunda menn talningaleik sem í fara allar fjárveitingar stofnunarinnar. Fiskiröllin vor og haust og svo allir loðnuleitarleiðangrar éta upp allt rekstrarfé stofnunarinnar.  Ef Hafró stundaði rannsóknir þá hefðu þeir getað spáð fyrir um ástand loðnustofnsins í dag, fyrir 3 árum! 

Og hvers vegna nýtir þessi stofnun sér ekki afladagbækur skipstjóra og fær aðgang að sýnatökum sem framkvæmdar eru um borð í vinnsluskipunum? Þar eru ómetanleg gögn sem þarf að vinna betur með. Það er ekki boðlegt að segja bara "Við vitum ekki hvað er að gerast........"

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 23.2.2020 kl. 14:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband