Ráðherra sjávarútvegs skríður fyrir Klíkunni

P1000279_960x641Jón Bjarnason  lét það verða sitt fyrsta verk sem ráðherra sjávarútvegs að skrifa eitt lítið lettersbréf til ICES og lofa statt og stöðugt að hann skyldi í einu og öllu eftir fiskveiðiráðgjöf Hafró næstu 5 ár (!) svo tryggja mætti ábyrga nýtingu og stuðla að „uppbyggingu“ þorskstofnsins.

      -Risaþorskur við hafnarkjaftinn í Reykjavík-

En hann gerði meira, hann bað ICES að taka út nýtingarstefnu  Hafró næstu árin og nú hefur borist svar eins og segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu:

Þann 20. janúar sl. barst sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóni Bjarnasyni, hjálagt svar Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES), sem íslenska Hafrannsóknarstofnunin á aðild að, þar sem gerð er grein fyrir úttekt sérfræðinganefndar sem kölluð var sérstaklega til að taka út nýtingarstefnu þá sem Hafrannsóknastofnunin lagði til vorið 2009 að fylgt verði á næstu fimm árum.  Í svari ICES kemur m.a. fram það álit á mati Hafrannsóknastofnunarinnar, að þessi nýtingarstefna muni leiða til þess, með yfirgnæfandi líkum, að hrygningarstofnar þorsks fari vaxandi og verði stærri árið 2015 en þeir voru í ársbyrjun 2009. Jafnframt kemur fram að nýtingarstefnan sé í samræmi við alþjóðleg varúðarsjónarmið og viðmið um afrakstur fiskistofna sem leiði til betri afkomu til lengri tíma litið.

Er hægt að leggjast lægra, eða er þetta brandari? Hvernig dettur ráðuneytinu í hug að spyrja ICES? Vita þeir ekkert hvað ICES er?

Ég get upplýst þá um hvernig ráðgjafanefnd N-Atlantshafsins var samsett árið 2004, þegar ég var að vinna í Færeyjum og með verkefni fyrir Grænlendinga:

 

ICES- North Western Working Group 27 April - 6 May 2004, Copenhagen.

 

1.1 Participants

 

Einar Hjörleifsson (chair) Iceland
Bjorn Ævarr Steinarsson Iceland
Torsteinn Sigurdsson Iceland
Höskuldur Björnsson Iceland
Sigurdur Jónsson Iceland
Kristján Kristinsson Iceland

Jákup Reinert Faroe Islands
Petur Steingrund Faroe Islands
Jean-Jacques Maguire Faroe Islands
Lise Helen Ofstad Faroe Islands
Luis Ridao Cruz Faroe Islands
Jesper Boje Greenland
Marie Storr-Paulsen Greenland

Kay Panten Germany
Hans Joachim Rät Germany
Jolyon Chesworth JRC, Italy
Sergei Melnikov Russia

ICES, Hafró, Fiskirannsóknastovan í Færeyjum og Náttúrufræðistofa Grænlands, er allt sama bixið! Bara skipt um hatt eftir því hvort þeir eru heima hjá sér eða að drekka saman öl í Kaupinhöfn.

Ekki að furða þó heitt hafi verið í kring um mann á þessum tíma!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Jón Hreinsson

Æjá, það fer bara um mann kjánahrollur við svona fréttir.  Þetta er auðvitað álíka gáfulegt og að fá útrásarvíkingana til að gera skýrslu um hrunið

Sigurður Jón Hreinsson, 22.2.2010 kl. 22:34

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Skárstu fréttir af vinnu í boði heibrigðrar skynsemi hvað varðar þessa vísindagrein er sú að nú er að hefjast fundaferð um landið. Þar er hópur áhugamanna um breytingar á fiskveiðstjórnuninni og fyrir hópnum fer Finnbogi Vikar lögfræðinemi af Bifröst en fundarstjóri verður Eiríkur nokkur Stefánsson. Ég var nýlega á fundi þar sem Finnbogi tók til máls um þetta efni og hef ekki í annan tíma heyrt þessu gerð betri og faglegri skil. Auk þess á afar einföldu og skiljanlegu máli.

Árni Gunnarsson, 22.2.2010 kl. 23:46

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ætli nafni þinn viti af þessu

Sigurður Þórðarson, 25.2.2010 kl. 07:22

4 Smámynd: L.i.ú.

Sæll nafni.

Það er víst svona sem þeir líta á málið frá fleiri en einni hlið. Sömu mennirnir líta semsagt á þetta bæði frá Íslandi og frá Danmörku. Þetta eru snillingar.

Kveðja, Jón Gunnar.

L.i.ú., 27.2.2010 kl. 00:49

5 Smámynd: Atli Hermannsson.

Ég ætla að gerast svo lágkúrulegur og líma hér inn málsgrein sem ég skrifaði í lítilli grein árið 2002 um efni sem tengist þessu sem Jón er að segja og er því miður að verða sígild. 

"Þegar ég segi þér að ráðgjafarnir hjá ICES eru menntaðir við sömu aðstæður og af sömu bókum og okkar ráðgjafar, nota sama reiknilíkan, sömu formúlur, sækja sömu þing og ráðstefnur, heimsækja hvorir aðra, og gefa hverjir öðrum góð ráð, um leið og þeir lyfta skálum hvorir fyrir öðrum. Þá fer maður að skilja hvernig okkar “bestu” fræðingum tókst að týna 600 þúsund tonnum af þorski á tveim árum, svo eitthvað sé nefnt."

Atli Hermannsson., 28.2.2010 kl. 23:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband