Ráðherra sjávarútvegs skríður fyrir Klíkunni

P1000279_960x641Jón Bjarnason  lét það verða sitt fyrsta verk sem ráðherra sjávarútvegs að skrifa eitt lítið lettersbréf til ICES og lofa statt og stöðugt að hann skyldi í einu og öllu eftir fiskveiðiráðgjöf Hafró næstu 5 ár (!) svo tryggja mætti ábyrga nýtingu og stuðla að „uppbyggingu“ þorskstofnsins.

      -Risaþorskur við hafnarkjaftinn í Reykjavík-

En hann gerði meira, hann bað ICES að taka út nýtingarstefnu  Hafró næstu árin og nú hefur borist svar eins og segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu:

Þann 20. janúar sl. barst sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóni Bjarnasyni, hjálagt svar Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES), sem íslenska Hafrannsóknarstofnunin á aðild að, þar sem gerð er grein fyrir úttekt sérfræðinganefndar sem kölluð var sérstaklega til að taka út nýtingarstefnu þá sem Hafrannsóknastofnunin lagði til vorið 2009 að fylgt verði á næstu fimm árum.  Í svari ICES kemur m.a. fram það álit á mati Hafrannsóknastofnunarinnar, að þessi nýtingarstefna muni leiða til þess, með yfirgnæfandi líkum, að hrygningarstofnar þorsks fari vaxandi og verði stærri árið 2015 en þeir voru í ársbyrjun 2009. Jafnframt kemur fram að nýtingarstefnan sé í samræmi við alþjóðleg varúðarsjónarmið og viðmið um afrakstur fiskistofna sem leiði til betri afkomu til lengri tíma litið.

Er hægt að leggjast lægra, eða er þetta brandari? Hvernig dettur ráðuneytinu í hug að spyrja ICES? Vita þeir ekkert hvað ICES er?

Ég get upplýst þá um hvernig ráðgjafanefnd N-Atlantshafsins var samsett árið 2004, þegar ég var að vinna í Færeyjum og með verkefni fyrir Grænlendinga:

 

ICES- North Western Working Group 27 April - 6 May 2004, Copenhagen.

 

1.1 Participants

 

Einar Hjörleifsson (chair) Iceland
Bjorn Ævarr Steinarsson Iceland
Torsteinn Sigurdsson Iceland
Höskuldur Björnsson Iceland
Sigurdur Jónsson Iceland
Kristján Kristinsson Iceland

Jákup Reinert Faroe Islands
Petur Steingrund Faroe Islands
Jean-Jacques Maguire Faroe Islands
Lise Helen Ofstad Faroe Islands
Luis Ridao Cruz Faroe Islands
Jesper Boje Greenland
Marie Storr-Paulsen Greenland

Kay Panten Germany
Hans Joachim Rät Germany
Jolyon Chesworth JRC, Italy
Sergei Melnikov Russia

ICES, Hafró, Fiskirannsóknastovan í Færeyjum og Náttúrufræðistofa Grænlands, er allt sama bixið! Bara skipt um hatt eftir því hvort þeir eru heima hjá sér eða að drekka saman öl í Kaupinhöfn.

Ekki að furða þó heitt hafi verið í kring um mann á þessum tíma!


Bloggfærslur 22. febrúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband