10.11.2011 | 11:59
Sjávarútvegsmál - Er vitlaust gefið?
Aðalfundur Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda SFÚ verður haldinn n.k. laugardag 12. nóvember á Icelandair Hótel Natura (áður Loftleiðir)
Í tengslum við aðalfundinn verður haldinn opinn fundur um sjávarútvegsmál er ber yfirskriftina Samkeppni og fiskvinnsla er vitlaust gefið? hefst fundurinn kl 14:30
Titill þessa fundar um sjávarútvegsmál minnti mig á grein sem ég skrifaði 1991(Sjómannablaðið Víkingur no. 8, september 1991) og hófst á tilvitnun í Stein Steinar :
Er vitlaust gefið?
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil
með spekingslegum svip og taka í nefið.
(Og allt með glöðu geði
er gjarna sett að veði).
Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því það er nefnilega vitlaust gefið.
Svört skýrsla
Svört skýrsla Hafró hefur enn einu sinni kynt undir umræðuna um fiskveiðistjórnun. Svo virðist sem það hafi komið mönnum að óvörum að enn skyldi lagt til að dregið yrði úr þorskafla. Þetta finnst mér einkennilegt því Hafró hefur alltaf sagt að það séu stöðugt að bætast í stofninn "lélegir árgangar". Það sem er öllu alvarlegra er sú staðreynd að með núverandi nýtingarstefnu mun verða dregið úr leyfilegum afla á hverju ári allt þar til tilviljuninni þóknast að fæða af sér "sterkan" árgang og skila honum inn í veiðina. Ef það verður 1991 árgangurinn, fer hann fyrst að skila einhverjum afla 1995, fjögurra ára gamall. Með sama niðurskurði og verið hefur síðastliðin þrjú ár, um 10% á ári, verður aflinn 1995 kominn niður í 180 þúsund tonn. Fari svo að 91 árgangurinn verði stór, og það er fyrsti batinn sem við getum vænst skv. Hafró, er viðbúið að hann verði friðaður til þess að nota megi hann í uppbyggingu stofnsins. Svo gæti það eins gerst að 91 árgangurinn og þeir sem á eftir koma verði einnig lélegir. Hvað á þá að gera?
Það sem sagt var í greininni 1991 reyndist 100% rétt, en ég leit yfir þróunina 10 árum seinna, árið 2001: Myndin sýnir þorskaflann 1991-2001.
Þorskveiðin 1995 varð 169 þúsund tonn, reyndar minni en spáð var.
Alla greinina má finna hér
Árið 1998 sagði ég fyrir um það fall sem varð í þorskstofninum 2001 en þá var gömlu "ofmati" kennt um. Aftur fengum við stóran skell 2007 þegar aflamarkið var sett á 130 þús. tonn. Enn erum við að hjakka í sama farinu, 160 þús. tonnum og ýmislegt bendir til þess að þorskstofninn fari að mælast minnkandi.
Þó ég hafi alltaf haft rétt fyrir mér um þróun stofnsins í rúm 20 ár, hefur enginn sjávarútvegsráðherra séð ástæðu til að leita til mín eða viljað þiggja frá mér neinar ábendingar.
Það er sorglegt þegar menn vilja ekki nota alla þekkingu og reynslu til að auka aflann. - Mitt innsæi byggist ekki á tilviljunum, heldur þekkingu og reynslu.
Vísindi og fræði | Breytt 5.2.2016 kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)